26.05.2009
Nú höfum við magnaðar fréttir að færa. Kísildalur er nú orðinn umboðsaðili ASRock á Íslandi. Fyrir þá sem ekki vita það þá eru ASRock ungir og upprennandi móðurborðsframleiðendur sem eru fremstir í fararbroddi þegar kemur að nýjungum og sniðugum lausnum. Frábær örgjörva og minnis-stuðningur eru aðalsmerki þeirra ásamt fádæma stöðugri og vandkvæðalausri keyrslu.
Við erum því afar stoltir að bjóða ASRock velkomna í hóp þeirra frábæru framleiðenda sem við erum í samstarfi við og trúum því að þetta samstarf muni reynast íslenskum neytendum mikill happafengur.