Frétt

Kísildalur flytur sig um set

20.12.2009

Já það hlaut að gerast fyrr eða síðar að við yrðum endanlega búnir að fá nóg af þrengslunum niður í litlu sætu búðinni okkar í Álfheimunum. Nú undanfarnar vikur höfum við unnið baki brotnu að því að undirbúa nýtt húsnæði okkar að Síðumúla 15 og verður opnað þar á mánudaginn 21. desember. Það ku reyndar vera einkar viðeigandi þar sem nágrannar okkar í Ásatrúarfélaginu, sem er til húsa á sama stað, munu þá halda upp á aðal hátíð sína enda vetrarsólstöður þennan sama dag.

Það er okkur heiður að bjóða ykkur velkomin í nýja verslun okkar og er það ósk okkar að því verði vel tekið og að sem fæstir villist á leiðinni. Þetta nýja húsnæði er mikil framför frá því sem var og munum við nú halda ótrauðir áfram að berjast fyrir betra verði, vöruúrvali og þjónustu í tölvugeiranum eins og við höfum gert undanfarin 4 ár.

Karfan þín

1 x Xigmatek Porter-CN881

Upphæð:

kr. 3.900

Mitt svæði

Fréttir