Frétt

Tilkynning vegna Ti-nspire reiknivéla

11.05.2011

Í ljós hefur komið alvarlegur galli á síðustu stýrikerfisuppfærslu fyrir Ti-nspire reiknivélar. Gallin lýsir sér í því að öðru sinni sem að reiknivélar eru ræstar eftir að slökknað hefur á þeim alveg, (þær fara venjulega bara í svefnástand til að stytta ræsitíma) þá frjósa þær í miðri ræsingu. Umrædd uppfærsla var tekin út af heimasíðu Texas Instrument fljótlega eftir að fyrstu tilfellin komu upp en vegna eðlis vandamálsins þá urðu margir fyrir barðinu á þessum alvarlega galla.

Við höfum átt í miklum samskiptum við TI í framhaldinu og hér með tilkynnist að Kísildalur tekur að sér að senda þær reiknivélar sem hafa orðið fyrir þessum uppfærslugalla út kaupendum vélana að kostnaðarlausu. Vinsamlegast athugið að viðgerðin felur í sér algjöra enduruppsetningu og því eru allar líkur á að forrit og gögn inni á reiknivélunum strokist út.

Okkur hjá Kísildal tekur afar sárt öll þau vandamál sem þessi ófyrirsjáanlegi og mjög svo alvarlegi uppfærslugalli hefur valdið námsmönnum síðustu vikurnar, einmitt á versta tíma fyrir suma. Við viljum því reyna eftir fremsta megni reyna að hjálpa þeim sem hafa lent í þessu við að fá úrlausn á sínum málum.

Ef þú átt slíka reiknivél þá viljum við benda þér á að athuga hvort hún sé að ná að ræsa sig upp og koma henni til okkar ef hún reynist hafa fengið þessa gölluðu uppfærslu.

Þeir hjá Texas Instrument hefur fullvissað okkur um að svona kostnaðarsöm mstök muni ekki endurtaka sig.

Virðingarfyllst

Guðbjartur Nilsson

Framkvæmdastjóri

Mitt svæði

Fréttir