Hátalarar fyrir vandláta tónlistarunnendur. V12 Fine Cone hátalarakeilurnar skila einhverri bestu tíðnisvörun sem fyrirfinnst á sambærilegum hljóðkerfum og hin nýja eAirbass tækni sér til þess að bassinn er bæði náttúrulegur og kröftugur, nokkuð sem oft er skortur á hjá hljóðkerfum með bassaboxi. Hljóðstilling og einfaldur tónjafnari eru framan á bassaboxinu til hagræðis fyrir notandann. Eigulegt kerfi sem skilar miklu meira hljóði en verðið gefur til kynna.
kr. 19.500
| Tegundarlýsing | |
|---|---|
| Framleiðandi | Microlab |
| Framleiðsluheiti | FC390 |
| Tæknilegir eiginleikar | |
| Tegund kerfis Hátalarakerfi skiptast í grundvallaratriðum upp í eftirfarandi flokka: 2.0 - Tveir hátalarar í víðóma (stereo) uppsettningu 2.1 - Tveir hátalarar auk bassabox í víðóma uppesttningu 5.1 - Bassabox, miðjuhátalari, tveir framhátalarar og tveir bakhátalarar |
2.1 |
| Heildarafl kerfis Það hljóðafl sem hátalarakerfi getur afkastað stöðuglega án þess að THD (trans-harmonic distortion) fari yfir 10%. Mælt í RMS Wöttum. |
54W |
| Afl hátalara Hljóðafl úr hverjum hátalara fyrir sig. |
2 x 15W |
| Afl bassabox Hljóðafl Bassabox mælt í Wöttum. |
24W |
| Tíðnisvið Breidd þess tíðnisviðs sem hátalarakerfið getur framkallað innan tilskylinna marka (+/- 6dB), flest kerfi komast langt uppfyrir mannlegt heyrnarsvið (20000Hz) en öðru máli gegnir um lægri mörk tíðnisviðsins. Því er æskilegt að neðri mörk séu sem lægst. |
30Hz - 20KHz |
| S/N hlutfall Hlutfall milli hljóðs og suðs mælt í dB. Í mögnurum er reynt að kappkosta að sem minnst suð úr umhverfinu (rafsegulbylgjur og stöðurafmagn aðalega) leki inn á hljóðið. Hlutfall upp á 60dB þýðir að suðið er einungis 0,1% af hljóðinu, allt þar fyrir ofan er því í góðu lagi. Í hágæða stúdíó mögnurum er þetta oft 90dB eða hærra. |
>75dB |