< Kælingar fyrir íhluti

Xilence norðurbrúarkæling

Xilence norðurbrúarkæling

40mm kælivifta, álsökkull, hljóðlát (21dB)

Ódýr lausn fyrir þá sem eru að missa vitið vegna skröltsins í norðurbrúarkælingunni eða þar sem bæta þarf kælinguna fyrir kubbasettið.

kr. 1.500

Kaupa Prenta

Upplýsingar
Tegundarlýsing
Framleiðandi Xilence
Tæknilegar upplýsingar
Stærð viftu

Þvermál og þykkt kæliviftu segja til um hversu miklu lofti hún ýtir m.v. snúningshraða. Í þessu gildir einfaldlega: "stærra er betra". Passaðu þig samt á að það sé pláss fyrir vitfuna.

40mm
Samhæfni við sökkla
Ekki þassa allar kæliviftur á alla sökkla, þetta segir til um á hvernig móðurborðum viðkomandi kæling passar á.
Flestar gerðir norðurbrúa
Snúningshraði
Fjöldi snúninga á mínútu, þetta hefur mikil áhrif á kæligetu þar sem hærri snúningur gefur meira loftflæði og þannig betri kælingu en jafnframt meiri hávaða. Til að vega upp á móti lágum snúningi er oft brugðið á það ráð að hafa meira þvermál á viftunni og auka þannig loftflæðið. 
4000RPM
Loftflæði
Þetta er það sem segir mest um afköst kæliviftunar sjálfrar, loftflæðið leikur um kæliflötinn og færir hitan frá honum út í loftið. Þessir tveir hlutir saman þ.e. gerð kæliflatar og loftflæði gefa til kynna hversu afkastamikil kæliviftan er.
5.62cfm
Hávaði í dB 21dB
Afltengi
Ýmist er viftan tengd í smágert 3-pinna tengi á móðurborði eða viftustýringu eða í stórgerðari 4-pinna tengin á aflgjafanum.
3-pinna
Efni í Kæliplötu
Kopar hefur betri hitaleiðni en er jafnframt þyngri og dýrari en Ál, oft er notast við samblöndu af þessum málmum til að minnka kostnað og þyngd án þess að skerða kælieiginleika mikið.
Ál
Stærð Kæliplötu
Víddir kæliplötu í millimetrum, gefur vísbendingu um heildarkæliflötinn.
40 x 56 x 11.5mm
Tech.is

Mitt svæði

Fréttir