< Þráðlaus netbúnaður

WinStars Draft-N netkort USB

WinStars Draft-N netkort USB

Þráðlaust, IEEE802.11b/g/n, 2R1T MIMO, 300/150Mbps

Netkort sem styður nýjustu þráðlausu tengistaðlana og móttökuhraða allt að 300Mbps.

kr. 5.500

Kaupa Prenta

Upplýsingar
Tegundarlýsing
Framleiðandi WinStars
Tegundarheiti WS-WNP671N
Tegund búnaðar
Segir til um hvaða hlutverki búnaðurinn gegnir. Í þráðlausum netsamskiptum er notast við "router" eða beinir sem sér um sjálfa nettenginguna fyrir þráðlausa netið, "adapter" eða þráðlaust netkort sem er það sem tölvurnar nota til að tengjast þráðlaust við beininn og "access point" eða aðgangsstað sem er nokkurs konar beinir nema að því leitinu að hann þarf að tengjast mótaldi á meðan að beinir er með innbyggt mótald.
Þráðlaust netkort
Tæknilegar upplýsingar
Staðall
Í dag eru í gangi nokkrir staðlar fyrir þráðlaus netsamskipti. Þeir sem eru mest notaðir heita 802.11b, 802.11g og 802.11n, þeir eru misjafnir að eiginleikum en í stuttu máli er 802.11n nýjastur og hraðvirkastur af þeim og kort sem styðja hann styðja jafnframt undantekningalaust b og g staðlana.
IEEE 802.11b/g/n
Gagnahraði
Segir til um hversu hratt er hægt að flytja gögn yfir þráðlausu nettenginguna miðað við að fullkomið samband sé til staðar.
300Mbps móttaka (downlink), 150Mbps sending (uplink)
Tengiviðmót
Sá staðall sem kortið notar til að hafa samskipti við tölvuna sjálfa. Innvær kort nota jafnan annað hvort PCI eða PCI-Express tengi á meðan að flest utanáliggjandi tæki nota einhvern USB (1.0/1.1/2.0) staðal.
USB2.0
Sendistyrkur
Segir til um hversu sterkt merki er verið að senda út. Það er mælt í dBm og þessi tala auk lotnetsmögnun segir til um hversu löng drægni er á kortinu.
13-17dBm

Mitt svæði

Fréttir