< Borðtölvur

Intel Ofurturninn

Intel Ofurturninn

Core i7-3770K, 8GB minni, 2TB diskur, GTX 680 Herculez, Intel HD 4000

Hrikalega vel útilátinn turn sem bryður í sig hvers lags verkefni með sóma. Öflugur Core i7 Ivy Bridge örgjörvinn er á heimavelli í hvers kyns vinnslu og hefur aðgang að feikinægu minni til að leysa stór verkefni sem smá. Inno3D GTX 680 Herculez Edition kortið gefur gríðarlega þrívíddargetu og vel útilátið og hraðvirkt vinnsluminni sér um að halda utan um sérhvert verkefni jafnvel í mikilli bakgrunnsvinnslu. Til að kóróna herlegheitin þá setjum við 256GB SSD disk til að gera tölvuna leiftursnögga í svörun í öllum kringumstæðum. Sannkallaður ofurturn!


Athugið að tölvan er án stýrikerfis.

Frí uppsettning fylgir á stýrikerfi ef það er keypt með tölvunni, sjá verð á stýrikerfum.

Öllum tilboðum okkar má breyta, vinsamlegast hafið samband og fáið upplýsingar hjá starfsmönnum Kísildals

kr. 349.500

Kaupa Prenta

Upplýsingar
Tegundarlýsing
Framleiðandi Kísildalur
Tegundarheiti Ofur Intel leikjaturninn
Tæknilegar upplýsingar
Móðurborð

Móðurborðið tengir alla hluti tölvunnar saman og ræður mestu um hvaða aðra hluti er hægt að nota í tölvunni.

ASRock Fatal1ty Z77 Professional, Intel Z77, 4xSATA2, 6xSATA3, eSATA3, 2 x GLAN, FW, XFire, SLI, USB3, DP/HDM
Örgjörvi
Vinnslueining tölvunar, hefur mikið um það að segja hversu öflug tölvan er í hefðbundinni vinnslu.
Core i7-3770K Ivy Bridge (OEM - án viftu)
Örgjörva kæling

Kælieiningar fyrir örgjörva eru misjafnar að kæligetu og mishljóðlátar.

Scythe Mine 2 örgjörvakæling, 140mm kælivifta hljóðlát, 8 tvöfaldar kælipípur
Vinnsluminni

Sama hversu öflug tölva er þá er mikilvægt að hún sé með nægjanlegt vinnsluminni annars verða jafnvel léttustu verkefni hægvirk. Í dag er algengast að 4GB-8GB séu nóg en í minnisfrekri vinnslu getur verið þörf á meira minni.

GeiL 8GB (2x4GB) Leggera 1600MHz DDR3, PC3-12800, CL 9-9-9-28, Dual-Channel
Harður diskur

Gagnageymsla tölvunar, stærðin er mæld í Gigabætum (GB) eða Terabætum (TB) sem eru 1000GB en til viðmiðunar þá fara vanalega um 20-50GB undir stýrikerfið, DVD mynd tekur um 2-4GB, Blue-Ray mynd getur verið 8-20GB og leikir eru oftast á bilinu 2-5GB en einstaka titlar geta verið upp undir 20GB og jafnvel stærri.

2TB Seagate Barracuda SATA3
Skjáhraðall

Sú vinnslueining tölvunar sem sér um myndvinnsluna. Fyrir leiki og þrívíddar teikniforrit er nauðsynnlegt að fjárfesta í öflum skjáhraðli. Í seinni tíð er orðið æ algengara að skjáhraðallinn hjálpi enn fremur til við ýmis verk og því sífellt mikilvægara að velja rétt í þeim efnum.

I-Chill GTX 680 Herculez 3000 edition 2GB
Geisladrif

Algengasti gagnamiðillinn í dag eru geisla- og DVD-diskar og eru því fáar heimilistölvur án geisladrifs. Algengast er að nota DVD-skrifara enda geta öll hefðbundin DVD-drif líka lesið geisladiska og allir hefðbundnir DVD-skrifarar hvort tveggja lesið og skrifað geisla- og DVD-diska. Fyrir þá sem vilja horfa á myndefni í fullri háskerpu er þó ráðlegt að fjárfesta í BlueRay drifi eða skrifara.

Hljóðkort

Hljóðkort sjá um alla hljóðvinnslu fyrir tölvuna. Í flestum tölvum er hljóðkortið innbyggt á móðurborðið en fyrir þá sem vilja fá besta hljóð sem völ er á er best að fá sér vandað hljóðkort aukalega.

Innbyggt 7.1 hljóðkort
Netkort
Algengasti tengimáti milli tölva og fyrir Internetið er netkort tölvunar og er það yfirleitt innbyggt á móðurborði tölvunar. Þrír tengihraðar eru algengastir í dag en þeir eru 10, 100 og 1000 Mbps eða milljón bitar á sekúndu.
Innbyggt 10/100/1000Mbps netkort
Aflgjafi

Sér tölvunni fyrir því afli sem hún þarf til að virka. Mikilvægt er að velja nægjanlega öflugan aflgjafa til að tölvan endist. Það sem ræður mestu um orkuþörfina eru örgjörvinn og skjákortið.

Aerocool Strike-X 1100W
Turnkassi Aerocool Xpredator Black XL-ATX Turnkassi, Svartur, 2 x 230mm, viftustýring
Turn og aflgjafi
Auka kassaviftur 2 x AeroCool Shark 14cm Evil Black Edition
Tengimöguleikar
USB tengi

Algengasti tengistaðallinn fyrir jaðartæki í dag. USB er mjög sveigjanlegur tengistaðall og er notaður af fjölmörgum jaðartækjum í dag svo sem lyklaborðum, músum, prenturum, flökkurum og svo mætti lengi telja.

Til eru fjórar útgáfur fyrir USB, 1.0, 1.1, 2.0 og 3.0 og er munurinn á þeim er fluttningsgetan, en hún er 1,5Mbps, 12Mbps, 480Mbps og 5Gbps í þeirri röð.

10 x USB2.0 (6 að aftan, 4 að framan) + 6 x USB3.0 (4 að aftan, 2 að framan)
FireWire tengi
FireWire er háhraða samskiptastaðall sem er mikið notaður í atvinnumannageiranum. Hvert FireWire port tryggir fluttningsgetu upp á 400Mbps og lítið "overhead" sem stundum einkennir USB samskipti.
2 x IEEE1394a 1 að aftan, 1 að framan
Diskatengi
Hér er um að ræða annars vegar IDE tengi sem er eldri staðallinn fyrir gagnageymslur og er enn notaður af vel flestum geisladrifum. Hins vegar eru það svo SATA tengi sem eru nýr og hraðvirkur staðall sem flestir harðir diskar nota í dag.
4 x SATA2 og 6 x SATA3
Hljóðtengi 6 mini-jack, SPDIF out
Skjátengi 2 x DVI, 1 x mini-HDMI
Önnur tengi PS/2, eSATA3

Mitt svæði

Fréttir